Aðalvalmynd

Hverjar erum við?

Við erum 13 ofurhressar bekkjasystur úr Kvennó sem hittumst mjög reglulega til að elda saman dýrindisgóðan mat og eyða æðislegum kvöldum saman. Það eru orðin stutt tvö ár síðan við útskrifuðumst úr Kvennó og leiddu leiðir okkar flestra út um allan hinn stórbrotna heim. En auðvitað finnum við alltaf tíma til að hittast og borða góðan mat!

Auglýsing

Klukkan

Saumó í kvöld!!!!

08. janúar 2009 klukkan 09:59
Sælar skvísur og gleðilegt ár!
Ég veit ekki hvort þið sjáið þetta nógu snemma (sendi sms líka), en ég var að spá í að halda saumó í kvöld kl:20:00, fimmtudaginn 8.janúar! Endilega allar að láta sjá sig ;)
Bara komið með e-d létt og lítið með ykkur, kannski snakk og vínber og gos. Er aðalega spent að sjá bara ykkur!

Hver sá sem er með gyltubókina má endilega koma með hana, alltaf gaman að kíkja í hana!

Sjáumst
p.s. látið mig vita ef þið komist ekki!!!!

long time no see

14. desember 2008 klukkan 19:25
Les einhver þetta blogg enná?
Ég kíki hingað inn einstaka sinnum en það virðist ekki vera mikil virkni á þessari síðu.

Þar sem mér leiðist ógurlega í próflestrinum ákvað ég að skrifa hingað inn til að drepa tímann.
Ég á tvö próf eftir, psychology of human sexual behavior, og Industrial and organizational psychology.
Gaman, gaman (í alvöru sko...mjög skemmtilegir og áhugaverðir tímar, þó próflesturinn í sjálfu sér sé ekkert mjög hressandi)Tongue out
Ég sit við skrifborðið mitt, að súpa Starbucks latte, og er að lesa um female sexual disfunctions, á meðan Mark sefur í rúminu við hliðina á mér (ekki réttlátt..mig langar að sofa!).

Annars var ég að velta fyrir mér hvort það verði kannski einhver hittingur yfir /eftir hátíðirnar. Og þá hvenær.
Ég verð í San Diego um jólin; mamma, tveir bræður mínir og littla frænka ætla að koma í heimsókn, og við ferðumst svo saman heim fyrir áramót!

Ég hlakka svooo til að koma til Íslands. Ég hef verið í þessu ágæta landi allt of lengi... Hluti af mér er orðin "americanized" þó ég reyni mitt allra, allra besta að halda í Íslendinginn í mér. Ég er tilbúin til að flytja aftur heim um leið og ég klára (og sem betur fer segir Mark það sama...hann vill endilega flytja til Íslands), en svo er spurning hvort "kreppan" á Íslandi muni taka enda bráðlega...það er ekkert svo spennandi að flytja heim og finna svo kannski ekki góða vinnu osrfv.

En jæja...Ég er bara að velta mér upp úr einhverju sem skiptir ekki máli.
Kannski ég snúi mér aftur að próflestrinum.

Ég vona að þið hafið það allar rosalega gott...og til ykkar sem eruð í prófum: gangi ykkur velLaughing

Afmæli

21. september 2008 klukkan 20:51
Jæja nú er ég stelpur að skrifa í alvöru, og enginn utanaðkomandi að rugla í ykkur.
Ég ætla að halda upp á afmælið mitt, sem er á mánudaginn eftir viku, laugardaginn 4.október. Ykkur stelpunum er að sjálfsögðu öllum boðið í partý. Vona bara að þið komist sem flestar, takið því daginn frá!!

Kv. Valgerður

Afmæli !

06. september 2008 klukkan 08:04
Belive it or not, ég átti afmæli í gær og í dag er ég ad blogga úr símanum mínum B-) já, minn heittelskaði gaf mér æðislega afmælisgjöf, nefnilega nýjan síma. Nú sit ég að skrifa blogg eins og ég sé ad skrifa sms :-D en nóg um það ætla að hafa þetta stutta færslu og þakka öllum fyrir kveðjurnar, kossana og knúsin i gær :-) þetta var æðislegur afmælisdagur.. Love you guys! :-*

Roooooop!!!!!!!!!!!!!!!111

26. ágúst 2008 klukkan 11:48
Rop,prump frat og eitthvað er Hætt með síðunna

Saumó í vikunni?

10. ágúst 2008 klukkan 14:57
Sælar stelpur. Er ekki málið að reyna að halda eithvað einu sinn í suma? Ég fer aftur til USofAmerica 20. Ágúst og þætti gaman að hitta ykkur einu sinni áður en ég fer. Ég veit að þetta er frekar stuttur fyrirvari en ef við getum ákveðið einhvern dag þá væri það mjög gaman!
 Na-na-na-na 
Já og Dísa..aftur...til hamingju með íbúðinaHlæjandi

Kristín

Elliær

09. júlí 2008 klukkan 20:56
Sælar mínar yndislegu gyltur!!

Ég ætla að halda upp á 23 ára afmæli mitt með mojito og slúðurmaraþoni heima hjá mér Laugalæk 26 á laugardaginn kl. níu.  Endilega láta sjá sig, maður er farinn að sakna ykkar!!

Kveðja
Dísa:)

Mamma Mia!

07. júlí 2008 klukkan 16:04
Sælar stúlkur, ég og Kristjana ætlum að kíkja í bíó á fimmtudagskvöld að sjá Mamma Mia. Ef einhvern ykkar er spennt fyrir að join-a okkur, bara endilega að kommenta hér eða vera bara í bandi við okkur. Væri gaman að reyna að sameinast allar sem vilja sjá hana. :)

Kv. Valgerður

da daddara da daddara...

11. júní 2008 klukkan 22:31
Já þið kannist allar við þennan marsa, brúðarmarsann. Hví ég þyl hann hér er önnur spurning. Svarið við henni er einkar skemmtilegt. Mér bárust nefnilega fréttir af brúðkaupi, sumarbrúðkaupi. En yndislegar fréttir og besta er að sú sem giftast skal er ein af gyltunum. Hver það er er svo stóra spurningin.
.
..
...
....
.....
......
.......

Til hamingju Sunna með trúlofunina og allar gylturnar vona að brúðkaupið í ágúst verði vel heppnað í alla staði.

Bestu kveðjur
Gylta ;)

Hittingur?

27. maí 2008 klukkan 16:01
Hvenær hentar ykkur stelpur að hittast?
Ég vil endilega fara að sjá ykkur allar sem fljótlegast. Hvað segið þið um að allar taki frá miðvikudaginn 11.júní og við höfum hittingar þá?

Kv. Valgerður

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Jólin

Könnun

hvaða lið?